Kosning forseta og skrifara í Nd.
Þriðjudaginn 11. október 1988

     Forseti (Kjartan Jóhannsson):
    Ég þakka hv. þm. það traust sem þeir hafa sýnt mér og á mér þá ósk að með okkur geti tekist gott samstarf hvar í flokki sem menn starfa, hvort heldur menn eru í stjórn eða stjórnarandstöðu.
    Ég vil líka nota þetta tækifæri til þess að þakka fráfarandi forseta, hv. þm. Jóni Kristjánssyni, fyrir ágæt störf á seinasta þingi.