Jöfnun á námskostnaði
Miðvikudaginn 19. október 1988

     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Virðulegi forseti. Ég vil greina frá því að þeirri endurskoðun á lögunum um jöfnun námskostnaðar sem hv. þm. Guðrún J. Halldórsdóttir gat um er lokið. Tillaga að endurskoðuðu frv. um þetta efni liggur fyrir. Þar hefur hins vegar ekki verið tekin ákvörðun um hvernig með það mál verður farið frekar. Ég mun gera ráðstafanir til þess að sú þingnefnd sem fær þetta mál til meðferðar, sem hv. þm. mælti fyrir, fái einnig frv. eða frumvarpsdrögin, frumvarpstillöguna til athugunar þannig að unnt verði að hafa hliðsjón af þeim við frekari meðferð málsins.