Efnahagsaðgerðir
Þriðjudaginn 01. nóvember 1988

     Karl Steinar Guðnason:
    Hæstv. forseti. Ég var spurður hér áðan um niðurfærslu og vil ég geta þess að niðurfærslu má framkvæma á ýmsan hátt. Umræður um niðurfærslu voru ekki langt komnar, ekki þroskaðar, þegar menn gáfust upp. Ég lýsti því yfir í mínum þingflokki að fyrr mundu menn ganga yfir mig dauðan en að skiptakjörum sjómanna yrði breytt. Það er mitt svar og læt ég máli mínu lokið.