Aðgerðir í efnahagsmálum
Þriðjudaginn 01. nóvember 1988

     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Herra forseti. Um þetta mál gildir hið sama og ég sagði áðan. Þetta er staðfesting á bráðabirgðalögum sem fyrri ríkisstjórn gaf út eftir samkomulag sem varð í ríkisstjórninni 20. maí sl. Það hefur þegar blandast inn í fyrri umræðu og ég læt nægja að leggja til að málinu verði vísað til hv. fjh.- og viðskn. að lokinni umræðu í deildinni.