Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Hér hefur verið tekið til umræðu frv. til l. um breytingu á lögum um námslán og námsstyrki. Ég veit ekki hvort maður ætti að segja: Húrra, nú ætti að vera ball!
Það er nú svo (Gripið fram í.) að þegar maður sér svona frv. flutt fyrir forgöngu Framsfl., sem vill nú ganga, eins og sá sem greip fram í tekur fram, eitt skref áfram og eitt aftur á bak, fram og til baka, þá verður maður undrandi.
Ég veit ekki til þess að Framsfl. hafi verið utan ríkisstjórnar sl. ár þegar þessar breytingar, sem hér eru teknar fyrir, voru gerðar. Ég held að Framsfl. hafi verið í ríkisstjórn. Hér kemur þó frv. sem þýðir að það á að hækka framlög, væntanlega, til námslána úr 2,5 milljörðum eins og er í fjárlögum og þá væntanlega í 3 milljarða. Það er gott að vita til þess að hv. 10. þm. Reykv. hefur fengið stuðning í þingflokknum hjá sér til að flytja þessar tillögur því að það sést að hv. 1. þm. Norðurl. v., formaður þingflokks Framsfl., er meðflm. svo að þetta hlýtur að hljóta stuðning frá Framsfl. Það er greinilegt að Alþb. ætlar líka að styðja frv. því að hv. þm. Alþb., sem hér eru nú hvergi nærri, styðja þetta frv. líka.
Það er enginn að efast um að það þurfi að taka á málum námsmanna um námslán og námsstyrki, en það skýtur skökku við að flokkur sem hefur verið í stjórn undanfarin 18 ár skuli flytja þessar breytingartillögur en skuli ekki hafa komið því fram í ríkisstjórn. Það er íhugunarefni, fyrst hæstv. forsrh. er genginn í salinn, hvort minnihlutastjórn hans muni flytja brtt. og fylgja þessu eftir, það er spurning, eða hvort stjórnin hefur alveg misst sjónar á sínum þingmönnum og þeir séu hlaupnir í sitt hvora áttina.
Ég man það að í síðustu kosningabaráttunni var þetta mál töluvert rætt og námsmenn kröfðust skýrra svara. Þeir fengu skýr svör frá allflestum, held ég, sem hér sitja á þingi. Menn höfðu mismunandi skoðanir en vildu gjarnan íhuga þetta og veita þeim stuðning. En ég held að Framsfl. hafi gefið þeim albesta stuðning sem hugsast getur, enda hefur ekkert af því komið fram. Ég lýsi furðu minni á því að það skuli flutt slíkt lagafrv. hér sem á greinilega að hækka námslánin. Það er auðvitað gert með því að hækka skattana í fjárlagafrv. Og eins og kom hér dável fram í máli hv. 2. þm. Reykv. var í tillögum alþýðubandalagsmanna á síðasta þingi tillaga um að námslán yrðu hækkuð með hækkuðum sköttum. Nú hafa þessar skattlagningar verið ákveðnar í fjárlagafrv. og þá geri ég ráð fyrir að það standi nú ekki á því. Því er alveg ljóst að þessi tillaga þýðir auðvitað að það verða gerðar tillögur um hækkun á fjárlögum. Ég sé að hér situr hv. 5. þm. Vestf., formaður fjvn., og ég geri ráð fyrir að hann muni leggja til þar í nefndinni að það verði hækkuð framlög til námslána. Það verður verulega gaman að sjá það þegar þeir leggjast á eitt í fjvn. og ríkisstjórn um að laga þessi mál. Nú er valdið þar þannig að það er nokkuð ljóst að þessi mál hljóta að verða tekin til endurskoðunar og bætt verulega. Ég fagna því að þetta frv. er komið

fram og ég mun ekki liggja á mínu liði við að koma því í gegn.