Stefnuræða forsætisráðherra
Fimmtudaginn 03. nóvember 1988

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Umræðan skiptist í tvær umferðir. Í fyrri umferð hefur forsrh. allt að hálfri klukkustund til umráða og fulltrúar annarra þingflokka 20 mínútur hver. Í síðari umferð hefur hver þingflokkur 10 mínútur til umráða. Stefán Valgeirsson, 6. þm. Norðurl. e., fær 15 mínútna ræðutíma.
    Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Framsfl., Sjálfstfl., Alþfl., Borgfl., Alþb. og Samtök um kvennalista.
    Ræðumenn verða: Fyrir Framsfl. talar auk forsrh. Steingríms Hermannssonar Finnur Ingólfsson, 10. þm. Reykv., í síðari umferð. Ræðumenn Sjálfstfl. verða Þorsteinn Pálsson, 1. þm. Suðurl., og Halldór Blöndal, 2. þm. Norðurl. e., í fyrri umferð og Geir H. Haarde, 17. þm. Reykv., í þeirri síðari. Af hálfu Alþfl. tala Jón Baldvin Hannibalsson utanrrh. og Sighvatur Björgvinsson, 5. þm. Vestf., í fyrri umferð, en Jón Sigurðsson viðskrh. í seinni. Fyrir Borgfl. tala í fyrri umferð Guðmundur Ágústsson, 11. þm. Reykv., Óli Þ. Guðbjartsson, 6. þm. Suðurl., og Ingi Björn Albertsson, 5. þm. Vesturl., en í þeirri síðari Júlíus Sólnes, 7. þm. Reykn. Af hálfu Alþb. tala Ólafur Ragnar Grímsson fjmrh. og Margrét Frímannsdóttir, 4. þm. Suðurl., í fyrri umferð, en Steingrímur J. Sigfússon landbrh. í síðari umferð. Ræðumenn Samtaka um kvennalista verða Málmfríður Sigurðardóttir, 7. þm. Norðurl. e., og Þórhildur Þorleifsdóttir, 18. þm. Reykv., í fyrri umferð og Guðrún Agnarsdóttir, 6. þm. Reykv., í þeirri síðari. Stefán Valgeirsson, 6. þm. Norðurl. e., talar síðastur í fyrri umferð.
    Hefst nú umræðan og hæstv. forsrh., Steingrímur Hermannsson, tekur til máls.