Nýtt hús fyrir Alþingi Íslendinga
Mánudaginn 07. nóvember 1988

     Flm. (Ásgeir Hannes Eiríksson):
    Hæstv. forseti. Ég vildi einungis lýsa því yfir að ég tel ekki að ráðhúsið útiloki á einn eða annan hátt að Alþingishúsið verði byggt, en svo má hlaða upp af steinsteypu að fólki fari að ofbjóða. Það er það sem ég á við, að Reykvíkingar sætta sig ekki við Alþingishús af þessari stærð á þessum stað, beint á eftir ráðhúsi af þessari stærð á þessum stað. Það er of mikið af því góða og það er verið að bera í bakkafulla Tjörnina.