Greiðslur fyrir sauðfjárafurðir
Fimmtudaginn 10. nóvember 1988

     Fyrirspyrjandi (Egill Jónsson):
    Virðulegi forseti. Ég hlýt að taka það skýrt fram að áhyggjuefni er að hæstv. landbrh. ber fyrir sig, í svari um það hvort brotið hafi verið á bændum í sambandi við afurðagreiðslur, fréttir en leitar ekki eftir því að fá staðfestingu á því hvernig þessum málum sé háttað. Það hlýtur að vera mikið áhyggjuefni og bændur landsins munu áreiðanlega taka eftir því hvernig svör eru gefin þegar mikilvægustu réttindamál þeirra eru til umræðu hér á Alþingi.