Fjárlög 1989
Fimmtudaginn 10. nóvember 1988

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Vegna orða hv. 4. þm. Austurl. vill forseti taka það fram að hún hefur litið svo á að ríkisstjórnin bæri til hæstv. fjmrh. órofa traust og hann yrði hér málsvari hennar í dag, en forseti lofar jafnframt að gera að því gangskör að finna hæstv. ráðherra Framsfl. og tilkynna þeim á hverju þeir eiga nú von.