Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Mánudaginn 21. nóvember 1988

     Frsm. kjörbréfanefndar (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Virðulegi forseti. Kjörbréfanefnd hafa borist tvö erindi, annars vegar kjörbréf 2. varaþingmanns Alþb. í Norðurlandskjördæmi vestra, Unnar Kristjánsdóttur, er taki sæti 4. þm. Norðurl. v., Ragnars Arnalds, og hins vegar kjörbréf 2. varaþingmanns Alþb. á Vesturlandi, Ólafar Hildar Jónsdóttur, er taki sæti 4. þm. Vesturl., Skúla Alexanderssonar. Kjörbréfanefnd hefur rannsakað þessi kjörbréf og leggur til að þau verði samþykkt.