Sala ríkisfyrirtækja
Fimmtudaginn 24. nóvember 1988

     Eyjólfur Konráð Jónsson:
    Hæstv. forseti. Mitt nafn bar nú hér á góma, en það er ekki þess vegna kannski sem ég stend hér þó það sé út af fyrir sig rétt að ég viti talsvert um almenningshlutafélög og við getum rætt það síðar. En þar sem ég átti sæti í fjh.- og viðskn. í hv. Ed. þegar Flugleiðamálið var þar á dagskrá og það átti hæstv. núv. fjmrh. líka ætla ég að endurteka það, sem ég sagði þá í sjónvarpi þegar hann var með aðdróttanir í garð þeirra manna sem veittu okkur allar upplýsingar, að hann færi með rangt mál. Hann gerir það enn héðan úr skjóli Alþingis.