Endurskoðun lánskjaravísitölu
Mánudaginn 28. nóvember 1988

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
    Forseti getur fallist á að það geti verið óheppilegt að gera hlé á umræðu og taka inn annað dagskrármál, en þannig stendur á að það eru aðeins sjö mínútur þangað til fundartíma lýkur og á mælendaskrá eru enn þá tveir ræðumenn. Hér er um að ræða að sýna ofurlitla tillitssemi gagnvart varaþingmanni sem er að fara út af þingi í dag, er einn flm. till. og þess vegna ekki um aðra að ræða sem geta flutt hana. Þess vegna vildi forseti taka tillit til þess.