Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Mánudaginn 05. desember 1988

    Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Borist hefur svohljóðandi bréf:
    ,,Formaður þingflokks Framsfl. hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem Steingrímur Hermannsson, 3. þm. Reykn., er erlendis í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að hans beiðni að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Reykjaneskjördæmi, Níels Árni Lund deildarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Óli Þ. Guðbjartsson,

forseti neðri deildar.

    Níels Árni Lund hefur áður tekið sæti á hinu háa Alþingi á þessu kjörtímabili og er hann boðinn velkominn til starfa.