Áfengiskaup handhafa forsetavalds
Mánudaginn 05. desember 1988

     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Seint hef ég uppi deilur við hv. 4. þm. Vestf. um hve sárt soltin lús bíti því vafalaust veit hann allt betur um það mál en ég. Hitt er svo annað mál að ég hlustaði á hans ummæli. Þau var ekki hægt að misskilja á nokkurn hátt og ég misskildi þau ekki. Hann verður svo að meta það sjálfur við sína samvisku hvort hann telur að hann hafi skýrt rétt frá.