Bætt samkeppnisstaða innlends skipaiðnaðar
Mánudaginn 05. desember 1988

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Vegna þeirrar utandagskrárumræðu um vanda sjávarútvegsins sem um hefur verið beðið hefur forseti ákveðið að gera hlé á þeirri umræðu sem hér var hafin um 8. dagskrármálið og halda henni áfram síðar. Það er ljóst að hér verður fram haldið fundi í kvöld vegna mikils álags í Sþ. og ef enginn mótmælir því hefst nú að lokinni umræðu um þingsköp sú umræða sem þrír stjórnarandstöðuflokkarnir hafa beðið um.