Bætt samkeppnisstaða innlends skipaiðnaðar
Mánudaginn 05. desember 1988

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill ítreka að verkstjórn í þinginu mun ekki stjórnast af því hverjir áhugahópar eru komnir hingað í húsið til að hlýða á umræður. Slíkt væri gjörsamlega ógerlegt með allri virðingu fyrir því að auðvitað reynir fólk að fylgjast með umræðum hér. En forseti getur ekki stjórnað þinginu eftir því. Það hljóta hv. þm. að skilja.