Þingsályktunartillaga um bætta samkeppnisstöðu
Þriðjudaginn 06. desember 1988

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti skal að þessu sinni verða við þessum tilmælum. En það er auðvitað ljóst að það er ekkert til fyrirstöðu að ljúka þessu máli. Það er aðeins einn hv. þm. fjarverandi sem beðið hafði um orðið. Það er ljóst að menn vilja ekki lengur sitja þennan fund og verður honum því slitið, en af þessu mun nokkur lærdómur verða dreginn nú á næstu vikum.