Grunnskóli
Miðvikudaginn 07. desember 1988

     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þær umræður sem hér hafa orðið. Í þeim hafa komið fram ýmsar spurningar sem að mörgu leyti væri eðlilegra að fjalla um eftir að nefnd hefur haft tækifæri til þess að skoða málið og ræða það þá nánar við 2. umr. þessa máls. Ég vona að hv. alþm. séu reiðubúnir til þess að hafa þann hátt á varðandi málið þannig að við getum rætt það betur efnislega þegar hv. nefnd hefur haft tækifæri til þess að fjalla um það.