Virðisaukaskattur
Miðvikudaginn 07. desember 1988

     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti fjh.- og viðskn. sem hefur rætt þetta frv. og mælir með samþykkt þess. Stefán Valgeirsson sat fund nefndarinnar og er einnig samþykkur afgreiðslu málsins. Ragnar Arnalds var fjarstaddur.
    Aðrir nefndarmenn voru sammála um þessa afgreiðslu, þ.e. Ingi Björn Albertsson fundaskrifari, Kristín Halldórsdóttir, Árni Gunnarsson, Guðmundur G. Þórarinsson, Matthías Bjarnason og síðan Páll Pétursson.