Eiturefni og hættuleg efni
Miðvikudaginn 07. desember 1988

     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingu á lögum um eiturefni og hættuleg efni, nr. 52/1988, sem er 72. mál Ed. á þskj. 74.
    Ed. hefur þegar afgreitt frv. óbreytt eins og það var lagt fyrir og ég get því verið stuttorður um málið hér. Í raun er um að ræða leiðréttingu á lögum sem samþykkt voru á seinasta þingi um eiturefni og hættuleg efni, þ.e. lög nr. 52/1988, sem öðlast gildi frá og með nk. áramótum hvað snertir starfsemi eiturefnanefndar, en sjálf lögin öðluðust gildi 1. júlí sl. Hins vegar var ákveðið að eiturefnanefnd sú sem nú situr sæti til áramóta og frá þeim tíma tæki til starfa ný nefnd í samræmi við ákvæði laganna.
    Inn í 1. mgr. 2. gr. laganna slæddist smámisskilningur sem ráðuneytið telur eðlilegt og reyndar nauðsynlegt að leiðrétta. Þar kemur m.a. fram að einn nefndarmanna skuli vera efna- eða verkfræðingur með sérþekkingu á notkun eiturefna og hættulegra efna í landbúnaði, garðyrkju og til útrýmingar meindýra og skuli hann tilnefndur af landbrn. Aldrei var ætlunin, þó svo færi, að hann þyrfti að hafa efna- eða verkfræðimenntun, sem hann að sjálfsögðu má hafa og má vera verkfræðingur, heldur að um væri að ræða aðila sem hefði sérþekkingu á notkun eiturefna og hættulegra efna í landbúnaði. Sú skipan hefur gilt til þessa og gefist vel. Breytingin sem óvart varð hér á mundi útiloka nú sitjandi fulltrúa landbrn. frá störfum í nefndinni, en það var ekki ætlunin. Rétt er enn fremur að benda á að í nefnd þeirri sem gerði tillögur að nýjum lögum um eiturefni og hættuleg efni var lögð til óbreytt skipan hvað varðar þennan fulltrúa landbrn. að öðru leyti en því að hann kæmi inn sem fullgildur nefndarmaður samkvæmt nýju lögunum í stað þess að taka eingöngu sæti í nefndinni þegar fjallað er um notkun eiturefna og hættulegra efna í landbúnaði eins og var í eldri lögum. Eins og af framansögðu má ráða hafa hér orðið mistök sem sem betur fer er hægt að leiðrétta í tíma þar sem lögin öðlast ekki gildi fyrr en frá og með nk. áramótum hvað snertir starfsemi eiturefnanefndarinnar.
    Ég held að það sé ekki ástæða til að hafa fleiri orð um frv. þetta, en legg til að því verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn. með beiðni um að málið fái skjóta afgreiðslu.