Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Fimmtudaginn 08. desember 1988

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Borist hefur eftirfarandi bréf frá forseta Nd.:
    ,,Formaður þingflokks Alþfl. hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem Jón Baldvin Hannibalsson utanrrh. er á förum til útlanda í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að hans beiðni að óska þess að vegna anna 1. varamanns taki 2. varamaður Alþfl. í Reykjavík, Jón Bragi Bjarnason prófessor, sæti á Alþingi í fjarveru hans.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.``
    Jón Bragi Bjarnason hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans því verið rannsakað. Ég býð hann velkominn til starfa.