Bann við ofbeldiskvikmyndum
Fimmtudaginn 08. desember 1988

     Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
    Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. greið og góð svör. Ég fagna því að þeirri nefndavinnu sem unnin er í ráðuneytinu, bæði að endurskoðun laganna um bann við ofbeldiskvikmyndum og eins heildarendurskoðun laga um vernd barna og ungmenna, skuli miða vel áfram og ég sætti mig mjög vel við tillögur hans um endurflutning málsins og að fella burtu sólarlagsákvæðið.