Jöfnun á námskostnaði
Föstudaginn 09. desember 1988

    Guðmundur Ágústsson:
    Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta mörg orð. Ég ætla aðeins að lýsa því yfir að Borgfl. kemur til með að styðja frv. Mér virðist að með frv. um jöfnun á námskostnaði verði þessum málum komið í betra horf en nú er og frv. gera það að verkum að þarna séu komnar skýrar reglur um það hvaða styrki eigi að veita og einnig hvaða aðilar eigi rétt á þessum styrkjum. Ég sit í menntmn. og mun fjalla nánar um frv. þar og stuðla að því að það nái í gegn á þessu þingi.