Húsnæðisstofnun ríkisins
Föstudaginn 09. desember 1988

     Friðrik Sophusson:
    Herra forseti. Mér sýnist að hér hafi komið fram fyrirspurnir til hæstv. sjútvrh., sem gegnir störfum hæstv. forsrh. um þessar mundir, og skýr svör þurfa að fást við þeim frá hæstv. ríkisstjórn. Þess vegna fer ég fram á að umræðunni verði frestað þar til að talsmönnum hæstv. ríkisstjórnar gefst tækifæri og kostur á að koma og svara þeim. Það er hægt að halda fundi áfram eftir klukkan hálffimm eða þegar fundir hefjast aftur í Ed. eða þá á mánudaginn þegar næstu fundir eru ráðgerðir. Það er eðlilegt að fyrirspurnum eins og þessum sem fram komu hér áðan verði svarað áður en 1. umr. málsins lýkur.