Húsnæðisstofnun ríkisins
Föstudaginn 09. desember 1988

     Friðrik Sophusson:
    Herra forseti. Ástæðan fyrir því að mér finnst ekki eðlilegt að halda þessum fundi áfram er að þingforsetar, starfandi hæstv. forsrh. og fulltrúar þingflokkanna héldu fund í hádeginu og komu sér saman um að þingflokksfundir skyldu haldnir á milli klukkan hálffjögur og hálffimm. Þess vegna finnst mér eðlilegt að fundi sé frestað til klukkan hálffimm a.m.k. og þá verði hægt að taka til við umræðuna á ný.