Húsnæðisstofnun ríkisins
Föstudaginn 09. desember 1988

     Forseti (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Forseti vildi af þessari ástæðu sem fram er komin á fundinum og eindregnum tilmælum um að starfandi forsrh. svari hér ákveðnum fyrirspurnum lengja fundinn lítið eitt. Hæstv. sjútvrh. gengur þegar í salinn og því er hægt að halda fram fundinum fáeinar mínútur til að fullnægja þessu ef mönnum sýnist svo.