Samkomulag um loðnuveiðar Norðmanna
Mánudaginn 12. desember 1988

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Hæstv. forseti. Till. sú til þál. um staðfestingu samkomulags um loðnuveiðar Norðmanna sem hér liggur fyrir á þskj. 168 hefur verið rædd í utanrmn. og var þar um hana gott samkomulag. Það hefur orðið að ráði að hv. 8. þm. Reykn., formaður utanrmn., greini frá meðferð nefndarinnar á málinu og helstu efnisatriðum.