Aðgerðir í efnahagsmálum
Miðvikudaginn 14. desember 1988

     Júlíus Sólnes:
    Herra forseti. Ég tel að það muni ekki komast ró yfir íslenskt efnahagslíf fyrr en við höfum annaðhvort afnumið allar vísitölutengingar milli launa og fjárskuldbindinga annars vegar og svo vísitalna hins vegar og/eða ef ekki næst samstaða um að a.m.k. meðan fjárskuldbindingar eru tengdar við vísitölu verði launin það einnig. Ég segi já.