Tekjuskattur og eignarskattur
Miðvikudaginn 14. desember 1988

     Geir H. Haarde:
    Herra forseti. Mér þykir leiðinlegt að angra forseta með þessu en mér finnst alveg óviðeigandi að ræða þetta mál hér án viðveru fjmrh. ( Gripið fram í: Hann er á leiðinni niður eftir.) Þar sem upplýst er að hann er á leiðinni niður eftir er spurning hvort það megi ekki doka við í örfáar mínútur því ég á við hann erindi í ræðu minni.