Tekjuskattur og eignarskattur
Miðvikudaginn 14. desember 1988

     Forseti (Kjartan Jóhannsson):
    Það verður orðið við ósk hv. þm. um að fresta fundi í fáeinar mínútur eða þar til hæstv. fjmrh. birtist. Hins var það reyndar von mín að ræðumaður gæti hafið ræðu sína ef í henni kynnu að vera einhver atriði sem ekki sneru beinlínis að ráðherra. En úr því að óskin er fram komin og þegar hefur verið orðið við henni stendur það að svo stöddu.