Stjórnsýslulöggjöf
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Fyrirspyrjandi (Guðmundur Ágústsson):
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir þetta svar. Ég fagna því að hann skuli hafa áhuga á þessum málum og ætli á þessu þingi að leggja fram á Alþingi frv. til stjórnsýslulaga. Ég held að það sé mjög áríðandi að Íslendingar fái slík lög einmitt, eins og hann tók undir, vegna réttaröryggis þegnanna og ekki síður fyrir stjórnsýsluna sjálfa til þess að starfa eftir.
    En ég ítreka þakklæti mitt til hæstv. forsrh. og fagna hans svari.