Lækkun vaxta á spariskírteinum
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Þorsteinn Pálsson:
    Frú forseti. Í umræðum í gær um tekjuskattsfrv. var hæstv. fjmrh. a.m.k. í tvígang spurður að því hvort hann hefði boðið lífeyrissjóðunum spariskírteini til kaups á næsta ári á óbreyttri lánskjaravísitölu þrátt fyrir yfirlýsingar um a.m.k. tvær aðrar gerðir af lánskjaravísitölu frá hæstv. forsrh. og svo frá þingmönnum Framsfl. Er það svo að fjmrh. sé tilbúinn til þess þrátt fyrir yfirlýsingar hæstv. forsrh. um breytta lánskjaravísitölu að bjóða lífeyrissjóðunum spariskírteini til kaups á óbreyttri lánskjaravísitölu?