Fjárlög 1989
Laugardaginn 17. desember 1988

     Pálmi Jónsson:
    Virðulegi forseti. 6. gr. fjárlagafrv. hefur ekki verið tekin til athugunar í fjvn. fyrir þessa umræðu eins og fram hefur komið. Það mun verða gert á milli 2. og 3. umr. og þá krafist skýringa á því hvaða fyrirætlanir liggja að baki þeim lið sem hér er verið að greiða atkvæði um. Ég greiði því ekki atkvæði.