Fjárlög 1989
Laugardaginn 17. desember 1988

     Albert Guðmundsson:
    Virðulegur forseti. Þessi grein er orðuð þannig að hér er ekki um upphæð að ræða heldur fjölda eintaka af hverju dagblaði og það til viðbótar við 4. gr. frv. þannig að við vitum ekki í dag hvaða upphæð þetta getur orðið, það er óákveðið. Ég tel að það sé frámunalega vitlaust að styrkja blöðin á þennan hátt og segi nei eins og ég hef gert sl. 14 ár.