Veiting ríkisborgararéttar
Mánudaginn 19. desember 1988

     Frsm. allshn. (Eiður Guðnason):
    Herra forseti. Frá því að allshn. þessarar hv. deildar fjallaði um þetta mál hafa bæst við í meðförum Nd. tvö nöfn. Þar sem ljóst er að þeir einstaklingar sem þar um ræðir uppfylla þau skilyrði og þær kröfur sem gerðar eru leyfi ég mér fyrir hönd nefndarinnar að leggja til að þessi hv. þingdeild samþykki frv. eins og það er komið frá Nd.