Framhaldsskólar
Mánudaginn 19. desember 1988

     Forseti (Jón Helgason):
    Ég tel rétt að verða við þeirri beiðni hv. 2. þm. Norðurl. e. að hv. menntmn. geti fjallað um þetta mál nú og tekið afstöðu til þessarar beiðni. Með því fresta ég þessum fundi í 10 mínútur meðan menntmn. getur tekið þessa beiðni til athugunar og umræðu um málið er frestað. --- [Fundarhlé.]