Aðgerðir í efnahagsmálum
Mánudaginn 19. desember 1988

     Forseti (Kjartan Jóhannsson):
    Forseta barst vitneskja um þetta mál, reyndar frá hv. 17. þm. Reykv., fyrir hálftíma síðan eða svo. Ég gerði þá þegar ráðstafanir til þess að fá formann nefndarinnar á minn fund. Hann hefur ekki fundist enn þá. Þar mun ég einmitt taka þetta umkvörtunarefni upp við formanninn og koma á framfæri þeim skoðunum sem hv. þm. lét hér í ljós og óska eftir því að mál fái formlega afgreiðslu.