Samningur um stofnun norræns þróunarsjóðs
Þriðjudaginn 20. desember 1988

     Frsm. utanrmn. (Jóhann Einvarðsson):
    Hæstv. forseti. Utanrmn. kom saman á fund 16. þ.m. og ræddi þessa þáltill. og gerði svohljóðandi samþykkt:
    ,,Nefndin hefur rætt tillöguna og kallaði á sinn fund Björn Dagbjartsson, framkvæmdastjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands.
    Nefndin mælir með því að tillagan verði samþykkt.``
    Undir þetta rita allir nefndarmenn í utanrmn.