Stefán Valgeirsson:
Virðulegi forseti. Ég vil lýsa ánægju minni yfir því að þessi tillaga var borin hér fram og þeim umræðum sem hafa átt sér stað um hana. Ég hef að vísu ekki fylgst alveg með þessari umræðu, það er margt að gera, en það er eitt sem þarf að hafa í huga umfram það sem hefur komið hér fram, a.m.k. þegar ég hef hlustað á. Það er sú verkkunnátta sem er orðin til í landinu í sambandi við skipasmíðarnar og viðhaldið. Það væri mjög slæmt, það væri mikill skaði fyrir okkar þjóð ef sú kunnátta mundi að einhverju leyti hjaðna niður fyrir ónóg verkefni fyrir utan við eigum auðvitað að keppa að því sem þjóð að gera það sem hægt er í landinu og lifa á því sem landið gefur meira en við gerum í dag og minnka þannig innflutning.
Ég sé ekki ástæðu til að ræða þetta frekar. Það er annað að gera. En ég vonast til þess að það verði tekið svo á þessum málum að menn þurfi ekki að leita í jafnauknum mæli til útlanda með skipasmíðar og viðgerðir og raun ber vitni.