Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 20. desember 1988

     Frsm. félmn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Virðulegi forseti. Eins og þingmenn hafa vafalaust tekið eftir hefur nál. félmn. verið ljósprentað upp og dreift á borð þingmanna. Ástæðan er sú að vegna tæknilegra mistaka hafði nafn hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur, meginforseta þingsins og fundaskrifara nefndarinnar, fallið út og kemur hér á nýju ljósprentuðu nál. ( Forseti: Ég vil minna þingmanninn á að það er forseti sameinaðs þings.) Ég biðst afsökunar. Að sjálfsögðu skal ég leiðrétta mín orð. Það var nafn hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur, forseta sameinaðs þings, sem féll niður, fundaskrifara nefndarinnar, og mér er bæði ljúft og skylt að taka fram að hún ritaði undir þetta nál., er fyllilega sammála því. Hennar nafn á þess vegna að standa undir þessu nefndaráliti.