Aðgerðir í efnahagsmálum
Þriðjudaginn 20. desember 1988

     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Á þskj. 295 liggur fyrir nál. meiri hl. fjh.- og viðskn.
    Nefndin hefur athugað þetta frv. Á fund hennar komu Ásmundur Stefánsson, Lára V. Júlíusdóttir og Örn Friðriksson frá ASÍ, Þórarinn Þórarinsson frá VSÍ og Vilhjálmur Egilsson frá Verslunarráði.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt eins og það liggur fyrir á þskj. 243.
    Undir þetta rita Guðmundur G. Þórarinsson, Ragnar Arnalds, Árni Gunnarsson og Páll Pétursson.