Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1988
Miðvikudaginn 21. desember 1988

     Stefán Guðmundsson:
    Herra forseti. Ég vísa til þess fyrirvara sem ég var með hér fyrr og við það er að bæta að hér kom fram yfirlýsing hæstv. fjmrh. í umræðu hér áðan um að hann væri fullviss um það að sameiginleg lausn mundi finnast á þessu máli. Þar með er lausn iðnrh. og hæstv. sjútvrh. staðfest og þess vegna sýnist mér málið muni fá farsæla lausn og því segi ég nei.