Efnahagsaðgerðir
Miðvikudaginn 21. desember 1988

     Albert Guðmundsson:
    Virðulegur forseti. Að sjálfsögðu met ég ákvörðun þá sem hæstv. forseti og virðulegur skrifstofustjóri með aðstoð hæstv. viðskrh. hafa komist að niðurstöðu um. En með því að standa upp og gera þessa fyrirspurn vildi ég draga athygli þingheims að því að í þessari atkvæðagreiðslu kemur kannski mönnum á óvart ekki síður en mér sjálfum að það hefur orðið mjög mikil stefnubreyting hjá Borgfl.