Vörugjald
Miðvikudaginn 21. desember 1988

     Albert Guðmundsson:
    Virðulegur forseti. Vörugjald í tolli hefur eins og tollurinn sjálfur keðjuverkandi áhrif til hækkunar í útreikningi á endanlegu verði vöru. Það hækkar útgjöld heimilanna og þar með minnkar kaupmáttur launþega og færir vanda ríkissjóðs í æ auknum mæli yfir á einstaklingana. Ég segi nei.