Vörugjald
Miðvikudaginn 21. desember 1988

     Kristín Halldórsdóttir:
    Herra forseti. Eins og ég gerði grein fyrir í 3. umr. tókst okkur ekki að koma fyllilega til skila afstöðu okkar hérna við atkvæðagreiðslu í 2. umr. Við styðjum í rauninni hærri skatt á nokkur af númerunum í 17. kafla tollskrárinnar og örfá önnur sem hafa í för með sér að hærri álögur eru á sykur og sætindi, gos og öl. En við erum andvígar frv. í heild. Ég segi því nei.