Tekjuskattur og eignarskattur
Fimmtudaginn 22. desember 1988

     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Þetta frv. er enn ein staðfesting á því að sú ríkisstjórn sem nú situr er ríkisstjórn skattheimtu og forsjárhyggju. Hér er enn ein aðför að heimilunum í landinu. Hér er enn á ferðinni kvöld jólakveðja til íslensku þjóðarinnar. Og ég segi nei.