Jólakveðjur í Ed.
Fimmtudaginn 22. desember 1988

     Forseti (Jón Helgason):
    Þá er komið að lokum þessa fundar sem verður síðasti fundur í Ed. fyrir jól og nýár. Ég vil því þakka hv. deildarmönnum kærlega fyrir ánægjulegt og árekstralaust samstarf á þessu þingi það sem af er og vænti þess að svo verði áfram á nýju ári. Ég vil jafnframt færa öllum þingdeildarmönnum bestu jóla- og nýársóskir og jafnframt skrifstofustjóra Alþingis og öllu starfsliði.
    Þeim deildarmönnum sem eiga um langan veg að sækja heim um jólin óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og vænti þess að við megum öll hittast hér heil á nýju ári.