Norrænn þróunarsjóður
Miðvikudaginn 04. janúar 1989

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Hæstv. forseti. Ég þakka hv. 7. þm. Reykn. fyrir undirtektir hans við frv. Ég vildi aðeins fullvissa hann um að ég mun gera það sem í mínu valdi stendur til þess að hagsmuna Íslendinga verði gætt í samskiptum við þennan sjóð og legg áherslu á að það verði m.a. gert með því að velja öfluga og trausta menn í stjórn sjóðsins af Íslands hálfu. Það verður líka gert. Og ég er sannfærður um að þetta verður til góðs ekki síður fyrir hin fátækustu löndin en fyrir íslensk fyrirtæki sem vilja fá verkefni í þeim löndum.