Aðgerðir í efnahagsmálum
Miðvikudaginn 04. janúar 1989

     Forseti (Kjartan Jóhannsson):
    Að undangengnu samráði við ýmsa fulltrúa stjórnmálaflokka hér hefur það orðið að ráði að halda þessari umræðu ekki áfram en taka hins vegar frá fundartíma á morgun kl. 3--4 fyrir deildafundi ef upp kynnu að koma mál sem menn teldu ástæðu til þess að leitast við að afgreiða og um það væri sæmileg samstaða. Þingflokkunum er ætlaður tími til fundahalda kl. 1--3, að þeim er nú mjög kreppt vegna ýmissa anna í þinginu en þetta mundi verða til þess að greiða fyrir því að þeir gætu haldið sína fundi.