Fjárlög 1989
Föstudaginn 06. janúar 1989

     Albert Guðmundsson:
    Virðulegi forseti. Það gleður mig að heyra rökin fyrir þessari tillögu og það er líka myndarlegt ef ríkið tekur að sér 70% af kostnaði við rekstur þessa kvennaheimilis. En með sömu rökum vildi ég gjarnan beina huganum að því hvort ekki er kominn tími til þess að það verði einhvers konar karlaathvarf með sömu rökum fyrir karlmenn í staðinn fyrir að hafa tugthúsin ein til að hýsa þá. En ég segi já.